Útgáfur Frostrósa fást í öllum betri hljómplötuverslunum og stórmörkuðum.
Vefverslun Frostrósa opnar á árinu 2009.
Útgáfur
![]() |
Íslensku dívurnar - Frostrósir, Kirkjan ómar Upptökurnar voru gerðar í Grafarvogskirkju í des. 2003 og 2004 og komu áður út á geislaplötunum ‘Frostrósir II’ og ‘Frostrósir III’ sem hér hafa verið endurhljóðblandaðar og -masteraðar og settar saman í eina glæsilega útgáfu með áður óútgefnum aukalögum. -Einkar hátíðleg geislaplata með mörgum af þekktustu sálmum jólanna. |
![]() |
Íslensku dívurnar - Frostrósir, Heyr himnasmiður Þær Dísella, Margrét Eir, Hera Björk og Eivør flytja hér ásamt góðum gestum, stórhljómsveit og kórum 14 gullfalleg jólalög sem vafalaust munu lifa með þjóðinni um ókomin ár. Er þetta fyrsta studioplata Frostrósa síðan 2002. Þessi vandaða geislaplata kom út í nóv. 2008 og fékk frábærar viðtökur. |
![]() |
Dívurnar & Tenorarnir - Frostrósir, 5 ára afmælistónleikar í Laugardalshöll - CD+DVD Það var slegið Íslandsmet þegar 12.000 manns sóttu 5 ára afmælistónleika Frostrósa. Fram koma í Höllinni Íslensku dívurnar, Tenorarnir þrír og góðir gestir ásamt Stórhljómsveit Frostrósa, Fóstbræðrum, Skólakór Kársness og Íslenska gospelkórnum. |
![]() |
Evrópsku dívurnar - Frostroses, viðhafnarútgáfa: 2CD + DVD Frostroses með Evrópsku dívunum er eitt viðamesta upptöku- og útgáfuverkefni sem ráðist hefur verið í hérlendis. Er hér komin út ný 3ja diska viðhafnarútgáfa og inniheldur hún nýjan mynddisk sem virkar í öllum kerfum auk nýrrar geislaplötu með 4 aukalögum. |
![]() |
Íslensku dívurnar - Frostrósir Fyrsta geislaplata Frostrósa sló rækilega í gegn þegar hún kom út árið 2002 og hefur hún í dag verið seld í vel yfir 10.000 eintökum. Mörg laganna skipa orðið veglegan sess í jólalagaflóru Íslendinga og má þar fyrst nefna lögin Hugurinn fer hærra og Stjarnan mín. |






