
Norræna stórstjarnan Sissel mun syngja inn jólin á Frostrósir KLASSÍK í Eldborg í Hörpu 10. desember. Hún verður þar í hópi með fremstu einsöngvurum þjóðarinnar þeim Ágústi Ólafssyni barítón, Garðari Thór Cortes tenór, Huldu Björk Garðarsdóttur sópran og Kolbeini Ketilssyni tenór. Fluttar verða helgustu perlur jólanna á einstökum hátíðartónleikum. Þetta er annað árið í röð sem haldnir eru sérstakir tónleikar undir heitinu Frostrósir KLASSÍK, samhliða hinum geisivinsælu Frostrósatónleikum.
![]() |
Sissel
Sissel Kyrkjebø er fædd 24. júní 1969 í Bergen í Noregi. Tónlistarferill hennar spannar nú yfir 20 ár og hefur hún um árabil verið ein skærasta stjarna Norðurlanda. Hún hefur sungið með flestum af þekktustu söngvurum samtímans t.d. Josh Groban, Placido Domingo, José Carreras, Celine Dion, Sting, Moby o.fl. Plötur hennar hafa selst í milljónum eintaka og sló jólaplatan sem hún gaf út árið 2009 í samstarfi við norska söngvarann Odd Nordstoga öll met í Noregi þar sem hún seldist í hálfri milljón eintaka auk þess að toppa vinsældarlista víðar.
Sissel hefur tvívegis komið fram á Íslandi; fyrst árið 2005 þar sem hún fyllti þrenna tónleika í Háskólabíói og svo með Evrópsku dívunum sem sungu á Frostroses-jólatónleikunum í Hallgrímskirkju árið 2006 en þeir tónleikar voru sendir út um allan heim frá Íslandi. Fimm ár eru því frá þvi hún sótti landsmenn síðast heim.
Sissel er bókuð fram til ársins 2015 en hún ákvað með miklum fyrirvara að taka sér frí í desember í ár til að eiga jólin heima með fjölskyldu sinni. Hún gerir þó eina undantekningu og syngur einu jólatónleika sína í ár hér á Íslandi með Frostrósum. Þess má geta að undanfarin 10 ár hefur Sissel að meðaltali sungið u.þ.b. 20-30 jólatónleika í stærstu tónleikahöllum Evrópu og Bandaríkjanna. |
![]() |
Ágúst Ólafsson
Ágúst Ólafsson stundaði nám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og síðan við Sibelíusar Akademíuna. Ágúst sótti tvenn meistaranámskeið hjá Elísabetu Schwarzkopf og um tíma reglulega einkatíma hjá henni. Í vetur syngur Ágúst hlutverk Papagenós í Töfraflautunni en önnur hlutverk hans hjá Íslensku óperunni til þessa eru m.a. titilhlutverkið í óperutryllinum SweeneyTodd, hlutverk Skuggans í Rake´s Progress og Belcore í Ástardrykknum haustið 2009 en fyrir síðastnefnda hlutverkið hlaut hann Grímuverðlaun sem söngvari ársins. Ágúst flutti þrjá ljóðaflokka Schuberts ásamt píanóleikaranum Gerrit Schuil á þrennum tónleikum á Listahátíð 2010, en fyrir þann flutning hlutu þeir íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjendur ársins. |
![]() |
Garðar Thór Cortes
Garðar Thór stundaði söngnám í Söngskólanum í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur en hélt þaðan til náms við Hochschule für Darstellende Kunst und Musik í Vínarborg. Hann sótti einkatíma hjá André Orlowitz í Kaupmannahöfn og stundaði einnig nám við óperudeild Konunglega tónlistarháskólans í Lundúnum.
Garðar Thór hefur komið víða fram og haldið einsöngstónleika, sungið í söngleikjum, óratóríum og óperum hér heima, víðsvegar í Evrópu, Asíu og í Bandaríkjunum. Hann hefur gefið út þrjár einsöngsplötur auk þess sem hann hefur sungið inn á fjölda annarra platna. Hann var tilnefndur til klassísku Brit verðlaunanna í Bretlandi árið 2008 fyrir plötuna Cortes, og hefur einnig hlotið tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna Grímunnar sem söngvari ársins í tvígang. |
![]() |
Hulda Björk Garðarsdóttir
Hulda Björk Garðarsdóttir er fædd á Akureyri. Eftir nám sitt við Tónlistarskólann í Eyjarfirði og Söngskólann í Reykjavík, nam hún við Hochschule der Künste í Berlín og Royal Academy í London.Hún hefur sungið burðarhlutverk við Norsku Óperuna í Osló, Malmö óperuna í Svíþjóð, Garsington Opera í Englandi og Íslensku óperuna þar sem hún var fastráðin um tíma, og syngur nú hlutverk 1.dömu í Töfraflautunni.Helstu hlutverk hennar eru m.a Governess í Turn of the Screw, Violetta í La Traviata, Anne Truloveí Rake´s Progress,Micaela í Carmen og Jenufa í samnefndri óperu Janacek. Þá hefur hún komið fram ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands á ýmsum tónleikum þeirra,og mun syngja í 9.sinfóníu Beethovensá vori komandi. |
![]() |
Kolbeinn Ketilsson
Kolbeinn Jón Ketilsson nam söng fyrst á Íslandi og síðar við Tónlistarháskóla Vínarborgar. Hann hefur sungið mörg af kröfuhörðustu hlutverkum óperubókmenntanna m.a. titilhlutverkin í Ævintýrum Hoffmanns og Don Carlos, Tristan og Isolde, Tannhäuser, Carmen, La Bohème og La Traviata. Kolbeinn hefur komið fram í óperuhúsum á öllum Norðurlöndunum, í Evrópu og N-Ameríku og starfað með mörgum frægustu leik- og hljómsveitarstjórum heims, m.a. Antonio Pappano, Vladimir Ashkenazy, Lorin Maazel og Zubin Metha. Hann söng Radames í Aidu í fyrstu uppsetningu nýju óperunnar í Kaupmannahöfn árið 2005 og einsöng í 9. Sinfóníu Beethovens á opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í maí á þessu ári. |
Frostrósir... færa þér jólin!
| 1. Himnarnir opnast | 9. Sálmar nýja heimsins |
| 2. Við arineld á jóladag | 10. Mamma kveikir kertaljós |
| 3. Jólin alls staðar | 11. Frá ljósanna hásal |
| 4. Jólatré | 12. Ekkert eins og snjórinn |
| 5. Ég verð heima um jólin | 13. Ave Maria |
| 6. Friður friður frelsarans | 14. Ó helga nótt |
| 7. Að eiga fagran draum | 15. Hátíðin heilsar |
| 8. Hátíð fer að höndum ein | 16. Heims um ból |
| 1. Forleikur jóla | 8. Hin fyrstu jól |
| 2. Friður á jörð | 9. Nú finn ég frið og ró |
| 3. Dúnmjúkur snjór | 10. Sérðu það sem ég sé |
| 4. Dansaðu vindur | 11. Um jólin |
| 5. Friður | 12. Blessun Guðs í Betlehem |
| 6. Frostrósir (loga á ný) | 13. Ó, helga nótt |
| 7. Engill | 14. Heyr, himnasmiður |
| 1. Nóttin sú var ágæt ein | 9. Betlehemstjarnan |
| 2. Jólanótt | 10. Jólakvæði |
| 3. Óskin um gleðileg jól | 11. Í Betlehem er barn oss fætt |
| 4. Litli trommuleikarinn | 12. Hin fegursta rósin er fundinn |
| 5. Boðskapur Lúkasar ... | 13. Haustvísur til Maríu |
| 6. Himinganga | 14. Heims um ból |
| 7. Jólakötturinn | 15. Tu Scendi Dalle Stelle |
| 8. Hátíð fer að höndum ein | 16. Nóttin var sú ágæt ein |
| 1. Inngangur að jólum | 7. Friður, friður frelsarans |
| 2. Frá ljósanna hásal | 8. Skammdegissól |
| 3. Hvert sem er | 9. Stjarnan mín |
| 4. Hugurinn fer hærra | 10. Ave Maria |
| 5. Ég verð hjá þér | 11. Það aldin út er sprungið |
| 6. Hann elskar líka þig | 12. Sofðu unga ástin mín |
| 1. Jólin koma | 10. Það koma jól |
| 2. Hallelúja | 11. Eldur í hjarta |
| 3. Oss barn er fætt | 12. Það eru jólin |
| 4. Stjarnan mín | 13. Geimferðalangur |
| 5. Góða ósk um gleðilega hátíð | 14. Frá ljósanna hásal |
| 6. Jólanótt | 15. Ó, helga nótt |
| 7. Óskalistinn | 16. Ave Maria |
| 8. Sú hátíð sem var | 17. Að lokum |
| 9. Ég er komin til þín |
| 1. Intro | 10. Christos Genate |
| 2. When a Child Is Born | 11. In The Lovely Dark Of Night |
| 3. Mitt Hjerte Alltid Vanker | 12. A Spaceman Came Travelling |
| 4. One Little Christmas Tree | 13. Silent Night |
| 5. Jólakvæði | 14. Frostroses |
| 6. Wexford Carol | 15. What Child Is This |
| 7. O Come All Ye Faithfull | |
| 8. Et barn er födt i Betlehem | |
| 9. Little Drummer Boy |