Útgáfur Frostrósa fást í öllum betri hljómplötuverslunum og stórmörkuðum.
Vefverslun Frostrósa opnar á árinu 2009.
Um Frostrósir
Segja má að saga Frostrósa sé ævintýri líkust og hefur uppgangur verkefnisins verið ótrúlegur enda hafa Frostrósir skapað sér fastan sess í jólaundirbúningi þúsunda landsmanna.
Þetta átti að snúast um jólin - að skapa fallega tónlist og ógleymanleg augnablik - færa fólki jólayl með glæsilegum tónleikum og útgáfum. Þetta áttu að vera stórir jólatónleikar þar sem helstu söngvarar þjóðarinnar kæmu saman í fylgd kóra og stórhljómsveitar og myndu syngja jólin inn fyrir Íslendinga - og allt undir heitinu Frostrósir.
Útkoman voru svo fyrstu Frostrósatónleikarnir árið 2002 í Hallgrímskirkju - og viðtökurnar létu ekki á sér standa. Fullt var út úr dyrum á þessu fyrsta ári þar sem Íslensku dívurnar komu tvívegis fram ásamt hljómsveit og kórum og þá var ekki aftur snúið. Árin 2003 og 2004 voru tónleikar haldnir í Grafarvogskirkju og að lokum dugði ekkert minna en Laugardalshöllin fyrir jólatónleika Frostrósa árið 2005, og ekki bara einu sinni heldur tvisvar og var slegið Íslandsmet í aðsókn á Frostrósatónleikunum þetta árið.
Árið 2006 var lagður grunnur að hinu alþjóðlega Frostroses verkefni og voru fengnar til landsins frábærar söngkonur alls staðar að úr Evrópu til að syngja jólin inn hér á Íslandi og á þá tónleika mættu enn fleiri en árið 2005. Fóru sérstakar upptökur svo fram í Hallgrímskirkju sem var færð í ísilagðan himnabúning af þessu tilefni. Hafa viðtökurnar við þessum erlenda hluta verkefnisins verið vonum framar enda hvaðan ættu jólin að vera ef ekki frá Íslandi, þessari fallegu eyju sem lúrir undir norðurpólnum, með dansandi norðurljós á himninum.
Árið 2007 var sannkallað tímamótaár í sögu Frostrósa. Hinir alþjóðlegu Frostroses tónleikar voru sýndir í yfir 20 löndum í 4 heimsálfum og færðu þar Evrópsku dívurnar heiminum jólin frá Íslandi.
Einnig var 5 ára afmæli Frostrósa á Íslandi fagnað. Af því tilefni var í fyrsta skipti farið um landið og urðu Frostrósatónleikarnir alls 11 talsins og slógu Frostrósir Íslandsmet í aðsókn öðru sinni, nú með um 12.000 gesti. Það met var svo jafnað í fyrra og hafa Frostrósir því verið aðsóknarmestu tónleikar landsins síðastliðin tvö ár.
Í ár verður hvergi slegið af og má líklega lofa bestu tónleikunum til þessa enda hefur flytjendahópurinn líklega aldrei verið glæsilegri. Í samstarfi við Flugfélag Íslands munu Frostrósir fljúga um landið 1.-9. desember. Jólatónleikar Frostrósa í glæsilegri umgjörð færa landsmönnum þannig jólin á Ísafirði, Eskifirði, Egilsstöðum, Sauðárkróki og í Ólafsvík og Vestmannaeyjum.
Stór-jólatónleikar Frostrósa verða svo 6. desember í Höllinni Akureyri og 12. desember í Laugardalshöll.
Gerum okkur glaðan dag fyrir jólin og upplifum nokkur ógleymanleg augnablik á glæsilegum jólatónleikum Frostrósa 2009
Sjáumst í desember...

