
Flytjendur á tónleikum Frostrósa þurfa engrar kynningar við. Hér deila þau með okkur því sem þeim þykir "það besta við jólin"
![]() |
Ágúst Ólafsson - Klassík
Það besta við jólin er að njóta samvista við fjölskylduna og fólkið sem þér þykir vænst um. Að verja jólunum einn kennir manni að þó allt annað sé til staðar; matur, gjafir og tónlist þá eru það ekki almennileg jól nema þeir sem standa manni næst séu nærri. |
![]() |
Björg Þórhallsdóttir - Akureyri
Það besta við jólin eru fegurðin, eftirvæntingin og boðskapurinn. Það er svo fallegt að sjá og upplifa hvernig þau vekja það besta í hverjum og einum. Ljósin í myrkrinu lýsa okkur upp hið innra sem ytra, tónlistin og allir fallegu söngvarnir næra hjartað. Við sameinumst í umhyggjunni, gleðinni og gjafmildinni þar sem kærleikurinn ræður ríkjum. Þetta er kósý tími, minn uppáhaldstími. |
![]() |
Eiríkur Hauksson - Reykjavík
Það besta við jólin er að fá að vera barn á ný eina ljúfa kvöldstund. Og ekki spillir það ánægjunni að vera kominn á þann aldur að geta haldið "afa-jól"! Litli engillinn okkar endurspeglar jólafrið og gleði með sínum tindrandi augum og einlæga brosi. Og þá er svo sannarlega sælla að gefa en þiggja... |
![]() |
Eivør - Reykjavík - Færeyjar
Ég elska að koma heim til Færeyja um jólin. Það besta við jólin er að njóta tíma með fólki sem stendur hjarta mínu nærri. Í ár vera jólin öðruvísi fyrir mig og fjölskyldu mína því þetta eru fyrstu jólin sem pabbi minn er ekki meðal okkar. Fjölskyldan mín er dugleg að standa saman og við munum standa enn þéttar saman í ár.
Góði maturinn, gjafirnar, snjórinn, tónlistin og jólaljósin í myrkrinu vekja upp góðar æskminningar sem aldrei munu hverfa úr hjartanu. |
![]() |
Erna Hrönn - Reykjavík - Akureyri
Fyrir mér eru jólin dýrmætasti tími ársins. Jólahátíðin sameinar fjölskylduna og gleðin í hjartanu smitar út frá sér í kærleika og góðvild. Að hlusta á fallegt jólalag við kertaljós og horfa á snjókornin svífa til jarðar býr til töfrandi augnablik. Að skreyta jólatréð með börnunum og hlaupa svo út til að búa til snjóengla eru jólin mín. |
![]() |
Friðrik Ómar - Reykjavík - Akureyri - Um landið
Ég hef alltaf mjög gaman af jólunum. Ekki síst fyrir þær sakir að maður er umkringdur svo góðu fólki og góðum mat. Jólin væru ekki neitt ef ekki væri fyrir fjölskylduna, vinina og matinn. Söngur og tónlist er líka mjög mikilvægurpartur af jólunum hjá mér og hefur alltaf verið. Ég syng allar heimsins nótur í desember. Sennilega syngég jafn margar nótur og ég borða af mismunandi sortum af smákökum. Jólin - best í heimi! |
![]() |
Garðar Thór Cortes - Reykjavík - Akureyri - Um landið - Klassík
Það besta við jólin er að fjölskyldan kemur öll saman en jólin fyrir mér snúast um að vera með þeim sem maður elskar. Jólaboðin og maturinn eru stór hluti af því, og svo skemmir ekki fyrir ef jólin eru hvít. |
![]() |
Gissur Páll - Reykjavík
Það besta við jólin er nálægðin við fjölskyldu, ættingja og vini. Að njóta matar og auðvitað allrar fallegu jólatónlistarinnar sem skapa jólastemminguna. |
![]() |
Guðrún Árný - Reykjavík - Akureyri
Jólin eru minn uppáhalds tími. Myrkrið, snjórinn, kyrrðin og kuldinn eru ósköp kósí, égmissi mig algjörlega í að setja upp jólaseríur og ljós, svo kveiki ég mikið á kertum. Það er sérstaklega huggulegt þegar það er vont veður. En að vera heima með fjölskyldunni, hlusta á fallega jólatónlist og baka með prinsunum mínum tveimur er það besta við jólin. |
![]() |
Guðrún Gunnars - Reykjavík
Ég er mikið jólabarn. Það sem mér finnst best við jólin er þessi samvera fjölskyldunnar. Öll tilefnin sem við búum til, til að hittast. Smákökubakstur, laufabrauðagerð, fara í bæinn og skoða í búðir, hittast á kaffihúsum ofl. Ég geri mikið af því að bjóða fjölskyldunni í kökur og heitt súkkulaði á aðventunni. Aðdragandi jólanna er svo fallegur tími, í jólaljósunum allt í kringum okkur og í mannlegum samskiptum. |
![]() |
Heiða Ólafs - Reykjavík
Það besta við jólin er að eyða yndislegum tíma í faðmi fjölskyldunnar. Jólin mín eru og hafa alltaf verið á Hólmavík, þar ég fæddist og ólst upp, og það er engu líkt að keyra inní jólabæinn minn, fallegan og skreyttan og finna jólin koma beint í hjartað í kyrrðinni og jólsnjónum sem er yfirleitt til staðar. Það er dásamlegt að borða allan þennan góða mat við kertaljós og seríur og hafa það notalegt með fjölskyldunni. Ég er forfallið jólabarn og ég er þakklát fyrir það. |
![]() |
Hera Björk - Reykjavík - Akureyri - Um landið
Jólin eru dásamleg því að heimurinn opnar hjarta sitt og slær í takt! Við finnum öll hvað skiptir máli í þessu lífi og þetta er tími samveru, gleði og kærleika...og ég er forfallinn aðdáandi allra þessara þátta :-) Og ekki skemmir blessaður jólasnjórinn og sú dásemd að syngja með Frostrósunum og taka á móti orkunni sem að streymir frá prúðbúnum tónleikagestum :) |
![]() |
Hulda Björk Garðarsdóttir - Klassík
Aðfangadagur á mínu heimili einkennist af aðventunni. Jólin koma af sjálfu sér ef við munum að njóta með börnunum, fjölskyldu og góðum vinum á aðventunni. Að versla gjafir á göngu í miðbænum, hlýja sér við kertaljós og hlusta á góða tónlist, þá dettur allt í dúnalogn þegar útvarpsklukkurnar klingja klukkan sex á aðfangadag. Matur á borðum, kertaljós, kærleikur og þakklæti. |
![]() |
Ína Valgerður - Akureyri
Aðventan og jólin hafa alltaf verið minn uppáhalds tími og ég er mikið jólabarn. Það sem mér finnst best við jólahátíðina er að fara heim til Húsavíkur og eyða jólunum í faðmi fjölskyldunnar. Kyrrðin, róin og kærleikurinn á aðfangadagskvöld er yndisleg upplifun. Jólarjúpan, hangikjötið og laufabrauðið eru órjúfanlegur partur jólanna að mínu mati. |
![]() |
Jógvan Hansen - Færeyjar
Jólin eru minn eftirlætisárstími, og það hafa þau alltaf verið. Það gæti verið að afmælisdagurinn minn, 28. desember hafi þar áhrif. Það hefur bara alltaf verið svo góður andi yfir desember í kring um mig, svo mikil hlýja þrátt fyrir kuldann. Ljós og litir prýða bæinn og heimilið þrátt fyrir myrkrið úti. Ég elska jólin! |
![]() |
Jóhann Friðgeir - Reykjavík
Jólin boða frið og kærleik sem ég finn alltaf hjá öllu fólki á þessum skemmtilega tíma ársins. Allir eru glaðir og yndislegt er að sjá öll börnin hlakka til jólanna með mikilli eftirvæntingu. Það finnst mér alveg frábært, en ég hugsa líka mikið um boðskapinn sem jólin boða og hugsa mikið um það á jólunum. Gleðileg jól! |
![]() |
Kolbeinn Ketilsson - Klassík
Fyrir mér eru jólin fyrst og fremst hátíð ljóss og friðar. Þau lýsa upp skammdegið og sérstakt andrúmsloft ræður ríkjum. Fólk finnur fyrir þörfinni að koma saman, láta hugann reika og njóta fallegrar tónlistar sem gerir aðventuna og jólin svo sérstaklega hátíðleg! Börn og fjölskylda eru í fyrirrúmi og vonandi vilja allir láta gott af sér leiða. |
![]() |
Margrét Eir - Reykjavík - Akureyri - Um landið
Það besta við jólin er að geta átt góðan tíma með vinum og fjölskyldu. Það skiptir svo miklu máli að geta hist og spjallað, hlegið og gleymt öllu veseni sem háir okkur allt árið þó það sé ekki nema í stutta stund. Það er gott að geta glatt fólk og létt þeim áhyggjurnar á þessum tíma með gjöfum, söng eða mat hvort sem það eru þínir nánustu eða einhver sem þú þekkir ekki neitt. Það besta við jólin er líka að borða góðan mat, ég hlakka alltaf til að elda eitthvað nýtt og spennandi. |
![]() |
Matti Matt - Akureyri
Jólin byrja hjá mér í fyrstu rjúpnaveiðiferðinni, fátt skemmtilegra en að afla sjálfur í jólamatinn. Við byrjum snemma að skreyta fyrir jólin á mínu heimili og eru drengirnir mínir mikil jólabörn. Fjölskyldan föndrar saman fyrir öll jól og ég fæ mest út úr því að upplifa jólin í gegnum strákana mína, hitta góða vini og stórfjölskylduna. |
![]() |
Óskar Pétursson - Akureyri
Það besta við jólin er að ég á afmæli á jóladag eins og fleiri merkir menn lífs og liðnir. Svo finnst mér líka yndislegt að vera með mínum nánustu, liggja í leti, borða góðan mat og toppurinn er að grípa í spil og spila Gömlu vist. Þannig vil ég hafa jólin. |
![]() |
Ragnar Bjarnason - Reykjavík
Jólin eru tími til að njóta þess besta sem lífið býður, samvista við nákomna og þess að gera sér dagamun. Það er ys og þys í desember og allir á fullu að undirbúa hátíðina, kaupa gjafir til að gleðja börnin. Svo koma jólin björt og hlý; hátíð fer í hönd í mesta skammdeginu og kuldanum. Við getum treyst á það. |
![]() |
Ragga Gröndal - Reykjavík
Það besta við jólin er maturinn, konfektið, afslappelsið, spilakvöldin, "skemmtilega-leiðinlega" sjónvarpsdagsskráin á RÚV, myrkrið sem umlykur allt á móti birtunni sem kemur frá kertunum og jólaskrautinu, jólabækurnar og á Þorláksmessu í góðra vina hópi eftir nokkra bjóra, að syngja hátt af miklum sársauka og innlifun lagið "Þú komst með jólin til mín" labbandi á Klambratúni eftir miðnætti. |
![]() |
Regína Ósk - Reykjavík
Ég er algjört jólabarn og nýt aðventunnar til fulls. Byrja snemma að hlusta á jóladiskana mína og skreyta heimilið. Kyrrðin sem kemur yfir á aðfangadagskvöld finnst mér það allra besta við jólin. Allir heima, enginn þarf að fara og drífa sig eitthvert. Bara öll fjölskyldan saman komin til að njóta! |
![]() |
Sissel - Klassík
Það er yndislegt að slaka á við góða tónlist og njóta þess að vera til. Nýta rólegar hátíðarstundir til að umvefja sig fjölskyldu og góðum vinum, hlaða sig góðri orku fyrir nýja árið sem framundan er. Við höfum margt að þakka og jólin eru sannarlega einnig tími þakklætis. |
![]() |
Stefán Hilmarsson - Reykjavík
Það besta við jólin er náðarstund með nánustu fjölskyldunni og góðar stundir með góðum vinum sem maður hittir suma hverja ekki mjög oft. Svo eru rjúpurnar alltaf ljúffengar ;-) |
![]() |
Vala Guðna - Reykjavík - Akureyri - Um landið
Stemningin sem myndast í jólaundirbúningnum með börnunum, falleg tónlist og súkkulaðibitakökubakstur, kirkjuklukkur og nýfallinn snjór, að finna til gamla jólaskrautið og skreyta jólatréð á þorláksmessu með stelpunum mínum, hátíðleikinn og notalegheitin á aðfangadag og svo jóladagsmorgun þar sem maður flatmagar með góða bók og eitthvað gott að narta í. |
![]() |
Védís Hervör - Reykjavík
Kærleikurinn. Að fá þá áminningu á dagatalinu einu sinni á ári að staldra aðeins við og þakka fyrir lífið óháð trúarbrögðum, menningu og efnahag. Fjölskyldufundirnir, kræsingarnar, söngurinn, tónlistin og börnin. |
![]() |
Karl Olgeir Olgeirsson - tónlistarstjóri
Karl Olgeir Olgeirsson hefur verið tónlistarstjóri Frostrósa frá upphafi. Hann hefur útsett bróðurpartinn af Frostrósarlögunum í gegnum tíðina og gjarnan lagt til ný lög til verkefnisins. Munu Frostrósir vera sá tónlistarskóli sem hann hefur gengið í hvað lengst og kennt honum hvað mest.Utan Frostrósa er Karl upptökustjóri, tónskáld og hljóðfæraleikari. Hann hefur starfað í hljómsveitum, sjónvarpi, útvarpi og leikhúsi. Hann er jólabarn hið mesta og þrátt fyrir að vinna við jólalög næstum allt árið um kring hlakkar hann enn til jólanna. |
![]() |
Árni Harðarson - stjórnandi
Árni Harðarson hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi sem kórstjóri,tónskáld og tónlistarkennari. Hann lauk burtfararprófi í píanóleik fráTónlistarskóla Kópavogs og stundaði framhaldsnám við The Royal College ofMusic í London árin 1978-83.Hann stjórnaði Háskólakórnum árin 1983-1989 og hefur verið söngstjóriKarlakórsins Fóstbræðra frá árinu 1991. Þá hefur hann komið fram sem kór-og hljómsveitarstjóri við ýmis tækifæri hér heima og erlendis.Árni er nú skólastjóri við Tónlistarskóla Kópavogs. |
| 1. Himnarnir opnast | 9. Sálmar nýja heimsins |
| 2. Við arineld á jóladag | 10. Mamma kveikir kertaljós |
| 3. Jólin alls staðar | 11. Frá ljósanna hásal |
| 4. Jólatré | 12. Ekkert eins og snjórinn |
| 5. Ég verð heima um jólin | 13. Ave Maria |
| 6. Friður friður frelsarans | 14. Ó helga nótt |
| 7. Að eiga fagran draum | 15. Hátíðin heilsar |
| 8. Hátíð fer að höndum ein | 16. Heims um ból |
| 1. Forleikur jóla | 8. Hin fyrstu jól |
| 2. Friður á jörð | 9. Nú finn ég frið og ró |
| 3. Dúnmjúkur snjór | 10. Sérðu það sem ég sé |
| 4. Dansaðu vindur | 11. Um jólin |
| 5. Friður | 12. Blessun Guðs í Betlehem |
| 6. Frostrósir (loga á ný) | 13. Ó, helga nótt |
| 7. Engill | 14. Heyr, himnasmiður |
| 1. Nóttin sú var ágæt ein | 9. Betlehemstjarnan |
| 2. Jólanótt | 10. Jólakvæði |
| 3. Óskin um gleðileg jól | 11. Í Betlehem er barn oss fætt |
| 4. Litli trommuleikarinn | 12. Hin fegursta rósin er fundinn |
| 5. Boðskapur Lúkasar ... | 13. Haustvísur til Maríu |
| 6. Himinganga | 14. Heims um ból |
| 7. Jólakötturinn | 15. Tu Scendi Dalle Stelle |
| 8. Hátíð fer að höndum ein | 16. Nóttin var sú ágæt ein |
| 1. Inngangur að jólum | 7. Friður, friður frelsarans |
| 2. Frá ljósanna hásal | 8. Skammdegissól |
| 3. Hvert sem er | 9. Stjarnan mín |
| 4. Hugurinn fer hærra | 10. Ave Maria |
| 5. Ég verð hjá þér | 11. Það aldin út er sprungið |
| 6. Hann elskar líka þig | 12. Sofðu unga ástin mín |
| 1. Jólin koma | 10. Það koma jól |
| 2. Hallelúja | 11. Eldur í hjarta |
| 3. Oss barn er fætt | 12. Það eru jólin |
| 4. Stjarnan mín | 13. Geimferðalangur |
| 5. Góða ósk um gleðilega hátíð | 14. Frá ljósanna hásal |
| 6. Jólanótt | 15. Ó, helga nótt |
| 7. Óskalistinn | 16. Ave Maria |
| 8. Sú hátíð sem var | 17. Að lokum |
| 9. Ég er komin til þín |
| 1. Intro | 10. Christos Genate |
| 2. When a Child Is Born | 11. In The Lovely Dark Of Night |
| 3. Mitt Hjerte Alltid Vanker | 12. A Spaceman Came Travelling |
| 4. One Little Christmas Tree | 13. Silent Night |
| 5. Jólakvæði | 14. Frostroses |
| 6. Wexford Carol | 15. What Child Is This |
| 7. O Come All Ye Faithfull | |
| 8. Et barn er födt i Betlehem | |
| 9. Little Drummer Boy |