Tónleikar 2011
Frostrósir KLASSÍK - Eldborg Hörpu
Skráð þann 23. september 2011 kl. 03:16
Norræna stórstjarnan Sissel mun syngja inn jólin á Frostrósir KLASSÍK í Eldborg í Hörpu 10. desember. Hún verður þar í hópi með fremstu einsöngvurum þjóðarinnar þeim Ágústi Ólafssyni barítón, Garðar Thór Cortes tenór, Huldu Björk Garðarsdóttur sópran og Kolbeini Ketilssyni tenór.
Fluttar verða helgustu perlur jólanna á einstökum hátíðartónleikum. Þetta er annað árið í röð sem haldnir eru sérstakir tónleikar undir heitinu Frostrósir KLASSÍK, samhliða hinum geisivinsælu Frostrósatónleikum.
Ásamt söngvurunum leika og syngja stækkaður klassískur armur Stórhljómsveitar Frostrósa ásamt Óperukórnum, Drengjakór Reykjavíkur og Barnakór Frostrósa. Um útsetningar sér Gísli Magna.
Tónlistarstjóri: Karl O. Olgeirsson - Stjórnandi: Árni Harðarson
Staður: Eldborg Hörpu
Tónleikadagur:
10. desember kl. 16:00
10. desember kl. 20:00 - UPPSELT
Miðaverð á Frostrósir KLASSÍK:
Úrvalssæti: kr. 13.990,-
Verðsvæði 1: kr. 11.990,-
Verðsvæði 2: kr. 9.990,-
Verðsvæði 3: kr. 6.990,-

Upplifðu tónlistarviðburð ársins með okkur.
Frostrósir...færa þér jólin
Til baka