Fréttir

Næstu viðkomustaðir Frostrósa eru Egilsstaðir, Eskifjörður og Vopnafjörður

Skráð þann 12. desember 2011 kl. 21:14
Næstu tónleikar verða haldnir í tónleikaröð Frostrósa um landið á Egilsstöðum, Eskifirði, Vopnafirði og í Ýdölum. Flytjendur eru þau Friðrik Ómar, Hera Björk, Garðar Thór Cortes, Margrét Eir og Vala Guðna. Þau leika með níu manna stórhljómsveit Frostrósa sem í fyrsta skipti hefur á að skipa blásturs- og slagverksleikaranum góðkunna Sigurði Flosasyni, og svo munu hörpuleikararnir Marion Herrera og Katie Buckley skipta með sér hringferðinni. Það eru því ýmsar nýjungar á boðstólnum á þessu afmælisári, og tónleikaferðin einkar glæsileg.
 
Norðlenskir stórtónleikar verða svo haldnir í Höllinni á Akureyri laugardaginn 17. desember og fer hver að verða síðastur til að tryggja sér miða þar. Tónleikaferðinni verður svo haldið áfram í Varmahlíð og með tveimur viðkomustöðum á Vestfjörðum, Ísafirði og á Tálknafirði.

Til baka