Fréttir

Vefverslun Frostrósa hefur opnað

Skráð þann 20. nóvember 2009 kl. 15:05

Nú getur þú pantað alla Frostrósadiskana og fengið senda heim að dyrum. Smelltu á "vefverslun" í valmyndinni hér að ofan og nálgastu uppáhald jólatónlistina þína.

Frá þér til þín ...eða í jólapakka fyrir þá sem þér þykir vænst um.

4 tónleikar í Laugardalshöll!

Skráð þann 10. nóvember 2009 kl. 09:37

Uppselt er á þrenna tónleika í Laugardalshöll og hefur fjórðu tónleikunum verið bætt vegna þessarar gífurlegu eftirspurnar.

Miðasalan er hafin á midi.is á þessa sérstöku aukatónleika sem eru kl. 16:00 sunnudaginn 13. desember.

ATH: Ekki verður hægt að bæta við fleiri tónleikum!

Miðasala á sérstaka aukatónleika hefst 6. nóv. kl. 12:00

Skráð þann 5. nóvember 2009 kl. 16:33

Miðasala á auka-stór-jólatónleika Frostrósa hefst föstudaginn 6. nóv. kl. 12:00 á midi.is.

Er um að ræða sérstaka aukatónleika á Akureyri sunnudaginn 6. desember kl. 16:00 sem og 3ju tónleikana í Laugardalshöll sunnudaginn 13. desember kl. 20:00

Það seldist upp á klukkustund á þrenna tónleika þegar miðasala hófst - tryggðu þér því miða í tíma því ekki verður hægt að bæta við fleiri tónleikum.

Aukatónleikar í Reykjavík og á Akureyri

Skráð þann 5. nóvember 2009 kl. 16:29

Vegna gífurlegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við 3ju stór-jólatónleikum Frostrósa í Laugardalshöll.

Verða þeir sunnudaginn 13. desember kl. 20:00. Einnig hefur verið bætt við aukatónleikum á Akureyri þann 6. desember kl. 16:00

Miðasala hefst á midi.is kl. 12:00 á morgun, föstudaginn 6. nóvember.

Frostrósir slá öll met

Skráð þann 5. nóvember 2009 kl. 16:26

Það seldist upp á innan við klukkustund á tvenna stór-jólatónleika Frostrósa í Laugardalshöll þegar miðasala hófst 3. nóvember.

Alls hafa nú um 15.000 manns tryggt sér miða á glæsilega jólatónleika Frostrósa um land allt. Uppselt er eins og fyrr segir á þrenna stór-jólatónleika Frostrósa, bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Einnig er uppselt á fjölda tónleika um landið, þ.e. á Eskifirði, Egilsstöðum og Ísafirði sem og á tvenna tónleika í Varmahlíð en aukatónleikum hefur verið bætt við á þessum fjórum stöðum vegna mikillar eftirspurnar.

Miðasala hefst 3. nóv. - sérstök forsala 2. nóv.

Skráð þann 1. nóvember 2009 kl. 07:07

Hér má finna allar upplýsingar um forsölu og almenna miðasölu á Frostrósir 2009

Til að taka þátt í forsölunni þarftu að:

a) Vera skráð(ur) í vefsamfélagið hér á síðunni - það gerirðu hér til hægri. Þú færð þá sendan tölvupóst á slaginu 12:00 mánudaginn 2. nóvember sem leiðir þig áfram í forsöluna.

b) Vera vinur Frostrósa á Facebook. Þú færð þá send skilaboð í inboxið þitt á Facebook á slaginu 12:00 mánudaginn 2. nóvember sem leiðir þig áfram í forsöluna.

Almenn miðasala hefst svo þriðjudaginn 3. nóvember kl. 10:00 á midi.is
Einnig verður hægt að nálgast miða á tónleikana um landið hjá Póstinum á viðkomandi tónleikastöðum. Sjá nánar undir upplýsingum um hverja og eina tónleika á forsíðunni.

Frostrósir 2009 - einnig á Höfn í Hornafirði

Skráð þann 30. október 2009 kl. 23:41

Vegna fjölda áskoranna hefur verið ákveðið að Frostrósir fari einnig á Höfn í Hornafirði, 2. árið í röð.

Tónleikarnir verða 2. desember kl. 20:00 í Íþróttahúsinu á Höfn. Miðasala fer fram á midi.is og á hjá Póstinum á Höfn.

Frostrósir 2009

Skráð þann 23. október 2009 kl. 16:33

Mest sótti tónlistarviðburður á Íslandi síðustu ár færir landsmönnum jólin á ný.
Stór-jólatónleikar Frostrósa verða í Höllinni Akureyri 6. des. og Laugardalshöll 12. des.

Dívurnar 2009 eru þær Margrét Eir, Guðrún Gunnars, Ragga Gísla og Hera Björk. Ásamt þeim koma fram stór-tenorarnir Jóhann Friðgeir og Garðar Thór Cortes ásamt Friðriki Ómari. Sérstakir gestir eru þau Högni og Sigríður Thorlacius úr Hjaltalín, Heiða Ólafs, Edgar Smári o.fl.

Það verða yfir 250 manns saman komnir á sviðinu þegar mest er enda verða þetta líklega glæsilegustu tónleikar í sögu Frostrósa. Um undirleik sér 30 manna Stórhljómsveit Frostrósa og kórar eru Karlakór Fóstbræðra, Vox Feminae, Stúlknakór Reykjavíkur, Gospelraddir Domus Vox og Íslenski gospelkórinn.

"Einstakt Frostrósakvöld ... frábærir tónleikar"
Mbl 2007

"Frábærir tónleikar þar sem engu var til sparað ... Ég held að allir sem lögðu leið sína í Höllina hafi fengið jólin beint í æð"
DV 2008

Um 12.000 gestir á Frostrósir 2008

Skráð þann 23. desember 2008 kl. 09:18

Við þökkum öllum tónleikagestum fyrir komuna á Frostrósir 2008. Tónleikarnir gengu allir frábærlega og fengu lofsamlega dóma tónleikagesta sem og gagnrýnenda.

Um 12.000 manns komu á Frostrósir í ár og erum við afar þakklát fyrir hve stóran sess tónleikarnir skipa orðið í jólaundirbúningi landsmanna. Uppselt var á alla tónleikana og staðarmet sett á fjölda þeirra bæjarfélaga er heimsótt voru.

Söngvararnir stóðu sig allir með prýði sem og stórhljómsveit og kórar. Er það mál manna að aldrei hafi tónleikarnir verið jafn glæsilegir þó auðvitað eigi aðdáendur Frostrósa margir aðrar uppáhaldsstundir í minningunni. Heitum við því að gera enn betur að ári.

Hafa Frostrósir notið fulltyngis ýmissa barnakóra á ferð sinni um landið í ár og þökkum við þeim öllum kærlega fyrir samstarfið og frábæra frammistöðu.

Frostrósir færðu landsmönnum jólin

Skráð þann 23. desember 2008 kl. 09:07

Frostrósir hafa nú lokið ferð sinni um landið eftir alls 8 tónleika á 6 stöðum á 5 dögum. Tónleikarnir fengu frábærar viðtökur tónleikagesta sem og fjölmiðla.

Tónleikarnir í Vestmannaeyjum fengu frábæra umsögn í Morgunblaðinu og var það afar góður endir á frábærri tónleikaferð. Þökkum við landsmönnum öllum fyrir frábærar viðtökur.

Stórtónleikarnir Á Akureyri og Reykjavík eru svo næstir en þeir verða 12. og 13. desember. Uppselt er á tónleikana kl. 20:00 í Reykjavík en aðeins örfá sæti laus á hina tvo.

Ný hljóðversplata frá Frostrósum - Komin út!

Skráð þann 28. nóvember 2008 kl. 22:59

Frostrósir - Heyr himnasmiður er fyrsta hljóðversplatan frá Frostrósum síðan árið 2002.

Hér flytja dívurnar í ár, þær Eivør, Margrét Eir, Hera Björk og Dísella okkur fjórtán einstaklega falleg og hátíðleg jólalög. Góðir gestir líta í heimsókn og um undirleik sér Stórhljómsveit Frostrósa, skipuð landsliðshljóðfæraleikurum. Karlakórinn Fóstbræður, Skólakór Kársness og Íslenski gospelkórinn fullkomna svo hátíðleikann. Stjórn upptöku annaðist tónlistarstjóri Frostrósa; Karl O. Olgeirsson.

Fjölmörg lög af plötunni eru nú byrjuð að óma á öldum ljósvakans og gaman að sjá og heyra hve vel þessi nýja jólaplata fellur landsmönnum í geð. Vafalaust mun þessi fallega útgáfa lifa með þjóðinni um mörg ókomin jól.

Frostroses - ný 3ja diska viðhafnarútgáfa komin út!

Skráð þann 28. nóvember 2008 kl. 22:41

Þessi glæsilega útgáfa kom fyrst út í fyrra og seldist upp á aðeins örfáum dögum. Eru tónleikarnir því endurútgefnir nú í nýrri 3ja diska viðhafnarútgáfu.

Hluti sendingarinnar í fyrra reyndist innihalda gallaðan mynddisk sem ekki spilaðist í öllum DVD-spilurum. Hefur nú verið bætt úr því og inniheldur þessi nýja útgáfa nýja kynslóð mynddisksins sem virkar í öllum kerfum.

Þeir sem hafa undir höndum gallaðan mynddisk frá í fyrra eru hvattir til að hafa samband við okkur á info@frostroses.com og er lítið mál að fá honum skipt út.

„Frostroses" með Evrópsku dívunum er eitt viðamesta upptöku- og útgáfuverkefni sem ráðist hefur verið í hérlendis. Tónleikarnir hafa verið sýndir í yfir 20 löndum í 4 heimsálfum og flutt þannig jólin frá Íslandi um allan heim við frábærar undirtektir.

Uppselt á þrenna tónleika Frostrósa

Skráð þann 28. nóvember 2008 kl. 22:41

Uppselt er á þrenna tónleika Frostrósa fyrir jólin, þ.e. á Ísafirði 4. desember, Eskifirði 6. desember og í Laugardalshöll 13. desember. Aukatónleikum hefur verið bætt við á umræddum stöðum sömu daga.

Óðum fyllist á alla tónleikana um land allt og stefnir í jafn mikla aðsókn og í fyrra þegar slegið var Íslandsmet er um 12.000 manns sóttu tónleikana.

Ekki verður unnt að bæta við fleiri aukatónleikum nú sökum þéttrar dagskrár Frostrósa í desember og því um að gera að hafa hraðar hendur til að tryggja sér miða.