Fréttir

Bestu þakkir til tónleikagesta okkar á 10 ára afmælishátíð Frostrósa

Skráð þann 6. janúar 2012 kl. 15:09
Við viljum þakka öllum þeim tónleikagestum sem upplifðu jólatónleika Frostrósa núna fyrir jólin. Við erum í skýjunum yfir móttökunum og góðri aðsókn á tónleika Frostrósa sem hafa verið og eru enn fjölsóttasti tónlistarviðburður á Íslandi.
 
Mikill fjöldi fólks um allt land sóttu tónleika Frostrósa fyrir jólin 2011 og eru tónleikarnir án efa mest sótti tónlistarviðburður sem settur hefur verið upp hér á landi, og ekki nóg með það, heldur eru tónleikar Frostrósa einnig fjölsóttustu jólatónleikar á Norðurlöndunum. Fjöldi tónleika og tónleikastaða hefur aldrei verið meiri og þó veður og færð gerðu okkur skráveifu erum við í heildina himinsæl með móttökur og tónleikasókn. Í ár voru tónleikar Frostrósa í Reykjavík í fyrsta skipti haldnir í hinu glæsilega nýja tónleikahúsi, Hörpu sem er orðið eitt helsta kennileiti borgarinnar. Á 10 ára afmælistónleikum Frostrósa fjölmenntu allir helstu flytjendur frá upphafi og voru flytjendur á sviði í fyrsta sinn yfir 300 talsins. Frostrósir Klassík, hátíðartónleikar á jólum voru nú haldnir í annað sinn og margfaldaðist fjöldi tónleikagesta á þann viðburð enda flytjendur á heimsmælikvarða.
 
Á afmælisárinu tókum við á móti 100.000asta tónleikagestinum og við héldum í fyrsta skipti tónleika erlendis. Tónleikarnir gengu allir vonum framar og voru viðtökur tónleikagesta einkar ánægjulegar. Enn og aftur takk fyrir okkur.
 
Við viljum óska tónleikagestum oglandsmönnum öllum gleði og farsældar á nýja árinu. Við hlökkum til að sjá ykkur aftur fyrir jólin 2012.

Til baka