Fréttir

Vestfirðir eru næsti viðkomustaður Frostrósa

Skráð þann 19. desember 2011 kl. 23:46
Uppselt er á tónleika Frostrósa á Tálknafirði og Ísafirði en enn er hægt að tryggja sér miða á aukatónleikana sem haldnir verða í Ísafjarðarkirkju kl. 18:00 þriðjudaginn 20. desember á midi.is
Nú fer tónleikaferð Frostrósa um landið að ljúka - á laugardag héldu Frostrósir sérstaka norðlenska Frostrósatónleika í Höllinni á Akureyri og héldu þannig upp á 10 ára tónleikaafmæli og 5 ára tónleikaafmæli á Akureyri. Leikið var fyrir fullri höll og myndaðist afar góð stemming á tónleikunum. Frá Akureyri var haldið í félagsheimilið Miðgarð á sunnudag.
Á morgun liggur leiðin svo á Vestfirði, en Ísafjörður og Tálknafjörður verða síðustu viðkomustaðir Frostrósa á tónleikaferð fyrir þessi jólin. Við hlökkum svo sannarlega til að leika fyrir Vestfirðinga í þeim flottu tónleikahúsum sem Ísafjarðarkirkja og Tálknafjarðarkirkja eru.
 

Til baka