Fréttir
11 tónleikar Frostrósa og Frostrósa Klassík í Hörpu
Skráð þann 12. desember 2011 kl. 21:07
Síðustu tvær helgar hafa Frostrósir ráðið lögum og lofum í Hörpu enda voru þar haldnir 7 afmælistónleikar Frostrósa dagana 1.-4. desember og var húsfyllir á þeim öllum saman. Stemmingin var ólýsanleg þegar allir helstu flytjendur Frostrósa frá upphafi stóðu saman á sviðinu í lokaatriðinu og sendu áheyrendur heim með kraftmiklum flutningi eftirlætis-Frostrósalaganna. Ásamt söngvurum stóðu á sviðinu yfir 300 manns þegar mest var, en Vox Feminae, Karlakórinn Fóstbræður, Stúlknakór Reykjavíkur, Gospekór Íslands, félagar úr Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju og Kársneskórnum, auk barna úr barnakórum Domus Vox og Grandaskóla sem komu fram ásamt stórhljómsveit Frostrósa. Er öllum þessum flottu flytjendum þakkað kærlega fyrir ógleymanlega tónleikadaga og glæsilega afmælisveislu.
Nýliðna helgi voru svo þrennir tónleikar Frostrósa Klassíkur þar sem Sissel Kyrkjebø kom fram ásamt nokkrum helstu einsöngvurum Íslendinga, þeim Ágústi Ólafssyni, Garðari Thór Cortes, Huldu Björk Garðarsdóttur og Kolbeini Ketilssyni. Tveir ungir sópransöngvarar, þeir Ari Ólafsson og Torfi Tómasson komu fram og sungu hvor um sig dúett með Sissel í laginu Pie Jesu eftir Andrew Lloyd Webber. Það voru töfrandi stundir sem tónleikagestir upplifðu með þessum glæsilegu flytjendum. Óperukórinn og Drengjakór Reykjavíkur sungu á tónleikunum og með léku félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Við þökkum öllum tónleikagestum hingað til fyrir frábæra samveru, fyrir góðar undirtektir og þátttöku í afmælisveislu hinna 10 ára Frostrósa.
Næstu tónleikar verða haldnir í tónleikaröð Frostrósa um landið á Egilsstöðum, Eskifirði, Vopnafirði og í Ýdölum. Norðlenskir stórtónleikar verða svo haldnir í Höllinni á Akureyri laugardaginn 17. desember og fer hver að verða síðastur til að tryggja sér miða þar. Tónleikaferðinni verður svo haldið áfram í Varmahlíð og með tveimur viðkomustöðum á Vestfjörðum, Ísafirði og á Tálknafirði.
Til baka