Fréttir

Hringferðin um landið sú stærsta hingað til - víða aðeins örfá sæti laus um landið

Skráð þann 7. október 2011 kl. 16:04
Miðasalan um landið fór afar vel af stað og eru aðeins örfá sæti laus í Höllinni á Akureyri þegar þetta er skrifað, enda eru tónleikarnir á Akureyri þeir stærstu hingað til. Í Höllinni sameinast helsta tónlistarfólk Norðlendinga Frostrósum á afmælistónleikum þar sem bæði er fagnað 10 ára tónleikaafmæli Frosrósa og 5 ára tónleikaafmæli á Akureyri.
Tálknafjörður og Vopnafjörður í fyrsta sinn
Frostrósir fara nú stærstu tónleikaferð sína um landið hingað til og munu halda tónleika á 13 stöðum.
Frostrósir verða í fyrsta skipti á sunnanverðum Vestfjörðum með tónleika á Tálknafirði og á norðanverðum Austfjörðum með tónleika á Vopnafirði. Markmiðið er að allir Íslendingar geti sótt tónleika Frostrósa í heimabyggð eða næsta nágrenni á afmælisárinu.
 
Nánari upplýsingar um tónleikana má nálgast hér á síðunni, og fer miðasalan fram á harpa.is og midi.is

Til baka