Fréttir

Stærsti miðasöludagur ársins hófst með látum

Skráð þann 29. september 2011 kl. 14:50
Miðasala á tónleikaveislu Frostrósa á aðventunni hófst í morgun á harpa.is og midi.is. Álagið varð gífurlegt í upphafi sölunnar og fór svo að vefsíða Hörpu lá niðri um stund. Það tók nokkrar mínútur að leysa úr þeim vanda en eftir þessa fyrstu hnökra hefur allt gengið sem smurt í sölunni og þegar uppselt á fimm tónleika í Hörpu. Þegar hafa verið settir þrennir aukatónleikar í sölu til að mæta þessari miklu eftirspurn, en um 12.000 miðar voru seldir áður en klukkan sló 14:00 og 4 tíma miðasölu.
 
Miðar á Frostrósir KLASSÍK 10. desember með Sissel í fararbroddi seldust upp á 10 mínútum og hefur aukatónleikum verið bætt við kl. 16 sama dag.
 
Þessi stærsti miðasöludagur ársins fer því vel af stað og augljóst að landsmenn ætla að njóta tónleikaveislunnar á aðventunni. Þúsundir miða hafa einnig selst um land allt og víða að verða uppselt strax á fyrsta degi.

Til baka