Fréttir

Sérkjör á tónleikatvennu - 10 ára afmælistónleika Frostrósa og Frostrósir KLASSÍK

Skráð þann 29. september 2011 kl. 13:41
Nú styttist óðfluga í miðasölu á tónleikaveislu Frostrósa á aðventunni, en almenn sala miða hefst mánudaginn 3. október. Föstudaginn 30. október hefst þó forsalan fyrir þá sem skráðir eru á póstlista Frostrósa og eru vinir Frostrósa á Facebook. Margir eiga eflaust erfitt með að gera upp á milli tónleikanna sem boðið verður upp á í glæsilegri afmælisdagsrká Frostrósa þetta árið.
 
10% afsláttur á tónleikatvennu
Þeim sem ætla að gera sérstaklega vel við sig og sækja bæði 10 ára afmælistónleika Frostrósa og Frostrósir KLASSÍK mun bjóðast að kaupa miðana á 10% afslætti.
 
Til að kaupa miða með afslættinum þarf að snúa sér til miðasölu Hörpu í síma 528 5050 þegar miðasalan er hafin. Aðeins er hægt að kaupa miða á þessum kjörum í miðasölu Hörpu og í gegn um síma.
 

Til baka