Fréttir

Frostrósir 10 ára - Einstök tónleikaveisla í tilefni afmælisins framundan

Skráð þann 23. september 2011 kl. 01:35

Frostrósir halda upp á tíunda tónleikaár sitt nú í desember. Af því tilefni verða haldnir risavaxnir afmælistónleikar í Eldborg Hörpu 3.-5. desember þar sem fram koma helstu söngvarar hinna íslensku Frostrósa frá upphafi – alls 20 söngvarar ásamt stórhljómsveit og kórum. Flutt verða öll vinsælustu lögin á óviðjafnanlegum tónleikum í nýrri og glæsilegri umgjörð.

Frostrósir munu að sjálfsögðu einnig gera víðreist um landið og í tilefni afmælisins verður farið enn víðar en hingað til. Tónleikastaðir í hringferðinni um landið verða 13 talsins, og verða tónleikar haldnir í fyrsta skipti á Vopnafirði og Tálknafirði. Það ættu því allir landsmenn að hafa tök á því að sækja Frostrósatónleika í heimabyggð eða næsta nágrenni.

Á Akureyri verða haldnir Einstakir norðlenskir Frostrósatónleikar 17. desember þar sem stórsöngvarar Norðurlands sameinast Frostrósum á glæsilegum afmælistónleikum á Akureyri.

Frostrósir KLASSÍK verður í Eldborg Hörpu 10. desember þar sem norræna stórstjarnan Sissel mun syngja ásamt nokkrum fremstu einsöngvurum þjóðarinnar, þeim Ágústi Ólafssyni, Garðari Thór Cortes, Huldu Björk Garðarsdóttur og Kolbeini Ketilssyni. Þetta er annað árið í röð sem blásið er til þessara hátíðartónleika á jólum samhliða hinum geysivinsælu Frostrósatónleikum.

Það styttist í miðasöluna – svo fylgist vel með. Við hlökkum til að sjá ykkur.

Frostrósir... færa þér jólin!

Til baka