Fréttir

Kærar þakkir fyrir okkur! 29 tónleikar á 19 dögum í desember

Skráð þann 4. janúar 2011 kl. 12:08
Við viljum þakka öllum þeim sem upplifðu jólatónleika Frostrósa núna fyrir jólin. Við erum í skýjunum yfir móttökunum sem fóru fram úr okkar björtustu vonum, en í ár var enn og aftur slegið met í aðsókn á tónleika Frostrósa sem hafa verið mest sótti tónlistarviðburður á Íslandi síðustu ár.
 
Mikill fjöldi fólks um allt land sóttu tónleika Frostrósa fyrir jólin 2010 og eru tónleikarnir án efa mest sótti tónlistarviðburður sem settur hefur verið upp hér á landi. Alls urðu tónleikarnir 29 talsins fyrir jólin og voru nú í fyrsta skipti haldnir fernir Frostrósatónleikar í Laugardalshöllinni, og svo lauk skemmtilegri tónleikaferð um landið í hinu nýja Menningarhúsi Hofi á Akureyri þar sem haldnir voru sex tónleikar. Við bættum við nokkrum nýjum tónleikastöðum í ár auk þess sem farið var af stað með Frostrósir Klassík, hátíðartónleika á jólum í Háskólabíói, en þar voru haldnir tvennir tónleikar sem mörkuðu endi tónleikaraðar Frostrósa fyrir jólin 2010.
 
Tónleikarnir gengu allir vonum framar og voru viðtökur tónleikagesta einkar ánægjulegar. Enn og aftur takk fyrir okkur.
 
Við viljum óska tónleikagestum og landsmönnum öllum gleði og farsældar á nýja árinu.  Við hlökkum til að sjá ykkur aftur fyrir jólin 2011.

Til baka