Fréttir
Stærsta fyrsta upplag tónleikadisks á Íslandi - Hátíðin heilsar kemur út 25. nóvember
Skráð þann 7. nóvember 2010 kl. 19:20
Hátíðin heilsar er heildarútgáfa tónleika Frostrósa 2009, en það ár slógu jólatónleikar Frostrósa öll met í aðsókn með yfir 22.000 gesti. Fernir tónleikar voru haldnir í Laugardalshöll og voru lokatónleikarnir teknir upp í hljóði og mynd, og verða þetta fyrstu tónleikarnir sem teknir eru upp og gefnir út á Íslandi í háskerpu. Fyrsta upplag af Hátíðin heilsar verður 12.000 eintök og er það stærsta fyrsta upplag sem pantað hefur verið eftir því sem Frostrósir komast næst.
Tónleikarnir koma út í heild sinni á geislaplötu og mynddiski þann 25. nóvember, en það er allmikil seinkun því fyrstu áætlanir miðuðu að því að útgáfan kæmi í búðir 5. nóvember. „Við höfum orðið vör við mikinn áhuga á útgáfunni, en fjöldi fólks hefur þegar tryggt sér eintak í forsölu í vefverslun okkar" segir Samúel. „Við höfum heldur ekki við að svara fyrirspurnum utan úr bæ varðandi það hvenær útgáfan komi til landsins, hvernær henni verður dreift í búðir og svo fram eftir götunum. Við sáum því þann kost vænstan að láta vita af seinkuninni sem er komin til vegna galla sem kom fram í framleiðslunni hjá Sony DADC í Þýskalandi sem framleiðir diskana fyrir okkur" segir Samúel.
Sviðsmynd og öll umgjörð á tónleikunum var líklega sú glæsilegasta sem sést hefur hér á landi og flytjendur á heimsmælikvarða ásamt hinni rómuðu tónlistardagskrá Frostrósa gerðu þetta að ógleymanlegum tónleikum. Flytjendur á útgáfunni eru þau Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes, Guðrún Gunnars, Hera Björk, Jóhann Friðgeir, Margrét Eir og Ragga Gísla. Sérstakir gestir voru þau Aðalheiður Ólafsdóttir, Edgar Smár ásamt Högna Egilssyni og Sigríði Thorlacius úr Hjaltalín sem sungu frumsamið lag, sérstaklega unnið fyrir tónleikana. Með þessum glæsilega hópi flytjenda kom fram Stórhljómsveit Frostrósa, Karlakór Fóstbræðra, Vox Feminae, Stúlknakór Reykjavíkur, Félagar úr Skólakór Kársness, Íslenski gospelkórinn og Gospelraddir Domus Vox. Tónlistarstjóri var Karl O. Olgeirsson, stjórnandi Árni Harðarson og listrænn stjórnandi Samúel Kristjánsson.
Til baka