Fréttir

Uppselt á 20 tónleika - Miðnæturtónleikum á Selfossi bætt við

Skráð þann 5. nóvember 2010 kl. 12:22
Ekkert lát virðist á eftirspurn eftir miðum á Frostrósir. Fyrir skemmstu var tvennum aukatónleikum bætt við á Akureyri og nú hefur þurft að bæta við miðnæturtónleikum á Selfossi og kvöldtónleikum á Eskifirði.
 
Í níu ára sögu Frostrósa hafa aldrei jafn margir miðar selst á svo skömmum tíma jafnvel þó tónleikarnir hafi verið þeir vinsælustu á Íslandi síðastliðin ár.  Uppselt er á þrenna tónleika í Laugardalshöll og þeir fjórðu og síðustu eru komnir í sölu á midi.is. Ekki verður hægt að bæta við fleiri tónleikum í Laugardalshöll.
 
Alls verða tónleikar Frostrósa í desember 29 talsins og af þeim er uppselt á 20 þeirra.  
 
 

Til baka