Fréttir
Uppselt á Frostrósir Klassík - Aukatónleikar komnir í sölu
Skráð þann 1. nóvember 2010 kl. 15:27
Undirtektir við þessa nýjung í tónleikahaldi Frostrósa hafa verið afar góðar og seldust miðar upp á fyrstu Frostrósir Klassík tónleikana strax í morgun. Því hefur aukatónleikum verið bætt við sama dag, 19. desember kl. 16.00.
Á tónleikum Frostrósa Klassík munu nokkrir af fremstu óperusöngvurum landsins koma fram og syngja sígilda sálma og helgilög eftir íslenska og erlenda höfunda. Tveir fremstu tenórar landsins, þeir Jóhann Friðgeir og Garðar Thór Cortes koma fram, ásamt sópransöngkonunum Dísellu Lárusdóttur og Grétu Hergils og Kristni Sigmundssyni, bassa. Klassískur armur Stórhljómsveitar Frostrósa, sem skipuð er mörgum af bestu hljóðfæraleikurum landsins, meðal annars félögum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, leikur undir stjórn Árna Harðarsonar. Einnig syngja á tónleikunum félagar úr Karlakór Fóstbræðra, Óperukórinn og stúlkur úr Stúlknakór Reykjavíkur.
Frostrósir Klassík verða með tvenna tónleika í Háskólabíói 19. desember kl. 16.00 og kl. 20.00.
Athugið að Frostrósir Klassík er viðbót við hina hefðbundnu Frostrósatónleikaröð sem haldin er frá 1. – 18. desember um allt land.
Til baka