Fréttir

Miðasala á Frostrósir Klassík og síðustu aukatónleika Frostrósa hefst í dag kl. 10.00

Skráð þann 1. nóvember 2010 kl. 09:38
Frostrósir Klassík eru nýjung í tónleikaröðinni okkar, sérstakir hátíðartónleikar sem haldnir verða í Háskólabíói 19. desember með nokkrum af fremstu óperusöngvurum landsins, þeim Dísellu Lárusdóttur, Kristni Sigmyndssyni, Jóhanni Friðgeiri, Grétu Hergils og Garðari Thór Cortes.
 
Í dag fara einnig í sölu miðar á síðustu aukatónleika Frostrósa um landið, en við bætum við fimmtu og sjöttu tónleikunum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 18. desember kl. 20.00 og kl. 23.00, þriðju tónleikunum í Selfosskirkju 3. desember kl. 23.30 og loks aukatónleikum í Eskifjarðarkirkju 5. desember kl. 18.00.
 
Það má með sanni segja að undirtektir við tónleikum Frostrósa hafi farið fram úr björtustu vonum, en tónleikarnir hafa verið vinsælasti tónlistarviðburður á Íslandi undanfarin ár og er nú þegar uppselt á 18 tónleika í desember.
 
Hlökkum til að sjá ykkur á Frostrósum.
 
Frostrósir... færa þér jólin.

Til baka