Fréttir

Fjórðu tónleikunum bætt við í Laugardalshöll - og fjöldi aukatónleika um land allt

Skráð þann 20. október 2010 kl. 16:40
Líkt og fram hefur komið hafa viðbrögðin við miðasölu Frostrósa verið með eindæmum góð. Það hefur því selst hratt upp á þrjá tónleika í Laugardalshöllinni. Því hefur verið brugðið á það ráð að bæta við tónleikum, sem verða þá fjórðu tónleikarnir í Reykjavík.

Tónleikarnir verða haldnir í Laugardalshöll sunnudaginn 12. desember kl. 16.00.

Verið er að athuga hvort hægt verður að halda aukatónleika laugardaginn 18. desember og kemur það í ljós í síðasta lagi mánudaginn 24. október.

Frostrósir þakka frábærar undirtektir og hlakka til að sjá ykkur í desember.

Frostrósir... færa þér jólin.

Til baka