Fréttir

Miðasala á Frostrósir slær öll fyrri met

Skráð þann 20. október 2010 kl. 16:31

Almenn miðasala á tónleika Frostrósa um allt land hófst í morgun kl. 10, en forsala fór fram í gær. Strax kl. 13.00 í dag (miðvikudag) höfðu selst ríflega 15 þúsund miðar. Í níu ára sögu Frostrósa hafa aldrei jafn margir miðar selst á svo skömmum tíma jafnvel þó tónleikarnir hafi verið þeir vinsælustu á Íslandi síðastliðin ár.  Uppselt er á þrenna tónleika í Laugardalshöll og þeir fjórðu og síðustu verða settir í sölu á midi.is kl. 17 í dag. Ekki verður hægt að bæta við fleiri tónelikum í Laugardalshöll. Uppselt er á ferna tónleika á Akureyri og á fjölda tónleika víða um land.

Starfsfólk Frostrósa vinnnur nú hörðum höndum að því að finna leiðir til að bæta við tónleikum, vegna þessarar gríðarlegu eftirspurnar, þar sem því verður viðkomið. Á Akureyri er komin upp sérstök staða þar sem uppselt varð strax á alla tónleikana fjóra en mikill vilji er til að bæta við tvennum tónleikum til viðbótar sem yrðu 18. desember og er niðurstöðu að vænta varðandi það um helgina.

 "Við reynum hvað við getum en þurfum að sjálfsögðu að taka tillit til söngvara, tónlistarmanna og starfsfólks tónleikanna. Þrátt fyrir að hér séu fremstu söngvarar landsins á ferð þá getum við ekki látið þá syngja tvenna til  þrenna tónleika á dag, marga daga í röð, bæði með tilliti til þeirra sjálfra auk þess sem ekkert má koma niður á gæðum tónleikanna” segir Samúel Kristjánson, skapari og forsvarsmaður Frostrósa.

 

Til baka