Fréttir

Forsala fyrir vini Frostrósa hefst í dag kl. 10 og almenn miðasala á morgun miðvikudag kl.10.

Skráð þann 18. október 2010 kl. 11:15
Forsala aðgöngumiða fyrir vini Frostrósa hefst í dag þriðjdag kl. 10. Á miðvikudag hefst svo almenn miðasala á Frostrósir, vinsælasta tónleikaviðburð landsins undanfarin ár, sem heillaði ríflega 22 þúsund tónleiksagesti víða um land í fyrra.

Tónleikum hefur nú verið fjölgað til að mæta gríðarlegri eftirspurn og búast má við að 25 þúsund manns sæki sér jólaskapið og væna gæsahúð á Frostrósartónleikana í ár.

Glæsileg umgjörð og einstakur hátíðleiki þeirra hefur skapað sér sess sem ómissandi liður í aðdraganda jólahátíðarinnar.

Á síðasta ári seldist upp á þrenna tónleika í Reykjavík og á tíu tónleika úti á landi á innan við tveimur sólarhringum. Það er því eins gott að hafa hraðar hendur að þessu sinni.

Til að geta tekið þátt í forsölunni þarf að skrá sig á póstlista Frostrósa hér hægra megin á síðunni, eða gerast vinur Frostrósa á Facebook. Leiðbeiningar um hvernig kaupa skal miða í forsölu verða svo sendar í pósti á póstlistann og sett upp tilkynning á Facebook síðu Frostrósa í fyrramál, áður en miðasalan hefst.

Til baka