Fréttir

Frostrósir um land allt

Skráð þann 1. október 2010 kl. 17:09

Eitt höfuðmarkmiða Frostrósa er að sem flestir landsmenn hafi kost á að upplifa tónleikanna og því höfum við ákveðið að fjölga tónleikastöðum um landið þetta árið. Alls verða haldnir tónleikar á tólf stöðum um allt land frá 1. - 17. desember og hefst miðasalan 20. október. Sérstök forsala fyrir þá sem skráðir eru á póstlista Frostrósa og vini Frostrósa á Facebook verður daginn áður, þann 19. október.

Söngvarar í tónleikaferðinni um landið verða þau Ragnheiður Gröndal, Hera Björk, Regína Ósk, Friðrik Ómar, Jóhann Friðgeir og Garðar Thór Corters ásamt hljómsveit og kórum.

Tónleikarnir verða sem hér segir:


1. des Ólafsvík
2. des Ísafjörður
3. des Selfoss
4. des Egilsstaðir
5. des Eskifjörður
7. des Vestmannaeyjar
8. des Akranes
9. des Reykjanesbær
11. des Reykjavík 
14. des Varmahlíð
15. des Húsavík
17. des Akureyri

Til baka