Fréttir

Flytjendur á Frostrósatónleikum 2010

Skráð þann 1. október 2010 kl. 17:02


Líkt og endranær er mikill metnaður settur í undirbúning tónleikanna og í ár erum við afar stolt af því að kynna til sögu Frostrósirnar okkar, því flytjendahópurinn er sérlega glæsilegur. Stefán Hilmarsson bætist nú í fyrsta skipti í karlalið Frostrósa sem ásamt honum skipa þeir Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes og Jóhann Friðgeir. Söngkonurnar Eiv­ør, Ragnheiður Gröndal og Regína Ósk syngja nú aftur með Frostrósum, ásamt þeim Margréti Eir og Heru Björk sem hafa verið í framvarðasveit undanfarin ár.

Til baka