Fréttir

Takk fyrir okkur - 22 þúsund gestir 2009

Skráð þann 20. desember 2009 kl. 17:54
Við viljum þakka öllum þeim sem upplifðu jólatónleika Frostrósa núna fyrir jólin. Við erum í skýjunum yfir móttökunum sem fóru fram úr okkar björtustu vonum, en árið 2009 var met slegið enn eitt metið í aðsókn á tónleika Frostrósa sem hafa verið mest sótti tónlistarviðburður á Íslandi síðustu ár. Alls sóttu tónleikana yfir 22.000 manns sem gerir tónleikana í ár mest sótta tónlistarviðburð sem settur hefur verið upp hér á landi.
Tónleikarnir gengu allir vonum framar og viðtökur tónleikagesta einkar ánægjulegar . Enn og aftur takk fyrir okkur. Við hlökkum til að sjá ykkur aftur fyrir jólin 2010.

Til baka