Útgáfur Frostrósa fást í öllum betri hljómplötuverslunum og stórmörkuðum.
Vefverslun Frostrósa opnar á árinu 2009.
Fréttir
Frostrósir 2009
Skráð þann 23. október 2009 kl. 16:33
Mest sótti tónlistarviðburður á Íslandi síðustu ár færir landsmönnum jólin á ný.Stór-jólatónleikar Frostrósa verða í Höllinni Akureyri 6. des. og Laugardalshöll 12. des.
Dívurnar 2009 eru þær Margrét Eir, Guðrún Gunnars, Ragga Gísla og Hera Björk. Ásamt þeim koma fram stór-tenorarnir Jóhann Friðgeir og Garðar Thór Cortes ásamt Friðriki Ómari. Sérstakir gestir eru þau Högni og Sigríður Thorlacius úr Hjaltalín, Heiða Ólafs, Edgar Smári o.fl.
Það verða yfir 250 manns saman komnir á sviðinu þegar mest er enda verða þetta líklega glæsilegustu tónleikar í sögu Frostrósa. Um undirleik sér 30 manna Stórhljómsveit Frostrósa og kórar eru Karlakór Fóstbræðra, Vox Feminae, Stúlknakór Reykjavíkur, Gospelraddir Domus Vox og Íslenski gospelkórinn.
"Einstakt Frostrósakvöld ... frábærir tónleikar"
Mbl 2007
"Frábærir tónleikar þar sem engu var til sparað ... Ég held að allir sem lögðu leið sína í Höllina hafi fengið jólin beint í æð"
DV 2008

